Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 08. janúar 2022 06:00
Victor Pálsson
Kannast ekki við sögusagnirnar um Ramsey
Mynd: Getty Images
Það er ekki líklegt að Burnley sé að tryggja sér miðjumanninn Aaron Ramsey sem er á förum frá Juventus.

Ramsey hefur verið orðaður við Burnley upp á síðkastið en þónokkur lið eru talin horfa til leikmannsins sem lék áður með Arsenal.

Það er ekkert pláss fyrir Ramsey á Ítalíu og mun Juventus gera allt til að losa leikmanninn í þessum glugga.

Ian Woan, aðstoðarþjálfari Burnley, kannast ekki við áhuga liðsins á Ramsey en viðurkennir að um mjög góðan leikmann sé að ræða.

„Okkar fjárhagsstaða er mjög þekkt og augljóslega myndi Aaron Ramsey styrkja okkur mikið," sagði Woan.

„Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður en þetta er í fyrsta sinn sem ég hef heyrt af þessu. Auðvitað hafa allir áhuga á svona hæfileikaríkum leikmanni en ég hef ekki heyrt af áhuga frá okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner