Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. janúar 2022 22:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Benzema kominn með 300 mörk fyrir Real
Félagar
Félagar
Mynd: EPA
Real Madrid 4 - 1 Valencia
1-0 Karim Benzema ('43 , víti)
2-0 Vinicius Junior ('52 )
3-0 Vinicius Junior ('61 )
3-1 Goncalo Guedes ('76 , Misnotað víti)
3-1 Goncalo Guedes ('76 )
4-1 Karim Benzema ('88 )

Real Madrid vann góðan sigur á Valencia í kvöld en liðið kom í leikinn með tap á bakinu úr síðasta deildarleik gegn Getafe.

Karim Benzema kom Real yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Negldi boltanum í þaknetið, óverjandi. Þetta var mark númer 300 hjá Benzema fyrir Real Madrid.

Snemma í síðari hálfleik var staðan orðin 2-0. Vinicius Jr skoraði markið eftir skemmtilegt samspil við Benzema.

Stuttu síðar skoraði Vinicius sitt annað mark og þriðja mark Real. Hann skallaði boltann í opið markið eftir að Cillesen markvörður Valencia reyndi að kýla skot Asensio frá.

Þegar skammt var eftir af leiknum fékk Valencia vítaspyrnu. Goncalo Guedes fór á punktinn en Courtois varði frá honum, það fór þó ekki betur en að Guedes náði að skalla boltann síðan í netið.

Benzema kláraði síðan leikinn fyrir Real með öðru marki sínu og fjórða marki liðsins.
Athugasemdir
banner
banner