Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 08. janúar 2023 19:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Emery: Megum ekki vera of svekktir
Mynd: Getty Images

Aston Villa er úr leik í Enska bikarnum eftir tap gegn Stevenage sem leikur í League Two sem er fjórða efsta deildin á Englandi.


Unai Emery stjóri Villa var spurður hvort hann hefði gert eitthvað öðruvísi ef hann fengi tækifæri á að spila leikinn aftur.

„Ekki alveg, ef leikurinn yrði spilaður aftur myndi ég spila með sömu leikmennina. Við erum með okkar plan og leikmenn með mikla reynslu og þeir æfa vel til að hjálpa liðinu eins vel og hægt er," sagði Emery.

„Við hefðum getað tapað með öðrum leikmönnum á bekknum eða með sömu og við töpuðum með. Nú er tími til að vinna saman í ferlinu og við megum ekki vera of svekktir."


Athugasemdir
banner
banner