Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 08. janúar 2023 14:34
Aksentije Milisic
Enski bikarinn: Derby vann League One slaginn - Jafnt í Championship slagnum
Sigur á Pride Park í dag.
Sigur á Pride Park í dag.
Mynd: Getty Images

Tveimur leikjum var að ljúka í enska bikarnum í dag. Bristol City og Swansea mættust og þá tók Derby á móti Barnsley.


Í Championship slagnum milli Bristol og Swansea fór jafntefli en Joel Piroe kom gestunum frá Wales í forystu eftir fimmtán mínútna leik.

Antonie Semenyo jafnaði metin fyrir heimamenn á 75. mínútu leiksins og því er ljóst að liðin munu þurfa að mætast aftur í Wales og útkljá málin þar.

Þá var League One slagur þar sem Derby og Barnsley áttust við en bæði lið eru ofarlega á töflunni í deildarkeppninni.

Derby fór auðveldlega í gegnum Barnsley og vann með þremur mörkum gegn engu. Liðið er því komið áfram í næstu umferð.

Bristol City 1 - 1 Swansea
0-1 Joel Piroe ('15 )
1-1 Antoine Semenyo ('75 )

Derby County 3 - 0 Barnsley
1-0 James Collins ('45 , víti)
2-0 Tom Barkhuizen ('60 )
3-0 Jason Knight ('79 )


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner