mán 08. febrúar 2021 22:23
Brynjar Ingi Erluson
Fyrirliði Leeds: Stoltur af strákunum
Liam Cooper og félagar hans fagna sigrinum
Liam Cooper og félagar hans fagna sigrinum
Mynd: Getty Images
Liam Cooper, fyrirliði Leeds, var ánægður með frammistöðu liðsins í 2-0 sigrinum á Crystal Palace í kvöld.

Leikmenn Leeds báru höfuð og herðar yfir andstæðinga sína í Crystal Palace. Liðið var 69 prósent með boltann og skapaði sér umul af færum.

Raphinha var langbesti maður Leeds á vellinum en hann var sífellt ógnandi með hæfileikum sínum. Cooper var afar ánægður með liðsfélaga sína eftir leik.

„Við töluðum um að ná í heimasigur og halda hreinu og okkur tókst ætlunarverkið. Við nýttum færin og ég er stoltur af strákunum," sagði Cooper.

„Við erum alltaf að reyna að bæta okkur á hverjum degi þannig þetta var gott kvöld. Patrick Bamford er í stuði. Við sjáum þetta á hverjum degi á æfingu og hann leggur hart að sér fyrir liðið og vonandi getur hann haldið áfram á sömu braut. Hann hefur reynst okkur ótrúlega vel," sagði Cooper ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner