Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. mars 2018 07:00
Hrafnkell Már Gunnarsson
Ausilio fylgdist með Di Maria sem gæti verið á förum
Angel Di Maria.
Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria er líklega á förum frá Paris Saint-Germain næsta sumar. Þetta kemur fram hjá Daily Mail sem heldur því fram að næsti áfangastaður sé Ítalía.

Argentínumaðurinn hefur ekki verið í eins stóru hlutverki og áður, á tímabilinu eftir að félagið keypti stórstjörnurnar Kylian Mbappe og Neymar síðasta sumar.

Sagt er að líklegur áfangastaður Di Maria á Ítalíu sé Inter Milan. Piero Ausilio, yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter, horfði á Di Maria og félaga detta út úr Meistaradeildinni í fyrradag á móti Real Madrid. Var hann þar mættur til að fylgjast með Di Maria sem var í byrjunarliði PSG vegna meiðsla Neymar.

Inter eru sagt hafa mikinn áhuga á Argentínumanninum sem er samningsbundinn PSG til 2019.

Di Maria, sem er þrítugur, hefur skorað 17 mörk á tímabilinu þrátt fyrir að byrja mikið á bekknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner