Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. mars 2018 06:00
Hrafnkell Már Gunnarsson
Kabasele við BBC: Auðvelt að gúggla árið 2018
Christian Kabasele.
Christian Kabasele.
Mynd: Getty Images
Christian Kabasele varnarmaður Watford grínaðist með mistök BBC þegar þeir notuðu mynd af honum í stað Abdoulaye Doucoure. BBC birti á Twitter-síðu sinni þá klúbba sem Doucoure er orðaður við í sumar.

Liðin sem voru á lista BBC voru Manchester United, Liverpool, Tottenham og Arsenal.

BBC lagaði villuna fljótt, en Kabasele var fljótari að ná skjáskoti og svara fyrir sig.

Hann benti BBC á að það væri auðvelt að „gúggla" árið 2018.

Watford situr í níunda sæti ensku úrvaldsdeildinnar eftir 1-0 sigur þeirra um helgina á West Brom.



Athugasemdir
banner
banner