Miðvörðurinn Alessio Romagnoli lék allan leikinn er AC Milan tapaði 2-0 fyrir Arsenal í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Liðin mætast aftur á Emirates næsta fimmtudag og keppast um að komast í 8-liða úrslitin.
Liðin mætast aftur á Emirates næsta fimmtudag og keppast um að komast í 8-liða úrslitin.
„Við byrjuðum frekar vel en fengum tvö heimskuleg mörk á okkur og gáfum þeim sigurinn," sagði Romagnoli við Sky Sport Italia að leikslokum.
„Við munum gera okkar besta í seinni leiknum þar sem við höfum engu að tapa. Við lögðum allt í sölurnar í dag en heimskuleg mistök kostuðu okkur.
„Þetta verður erfitt en við verðum að reyna að laga stöðuna í London."
Athugasemdir