sun 08. mars 2020 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Chelsea og Everton: Ein breyting hjá Lampard - Gylfi fyrirliði
Mynd: Getty Images
Klukkan 14:00 hefst fyrri leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni þegar Everton sækir Chelsea heim á Stamford Bridge.

Leikurinn er í beinni útsendingu á Síminn Sport. Chelsea er í 4. sæti deildarinnar á meðan Everton er í því tólfta. Sigri Everton kemst liðið hins vegar upp að hlið Arsenal í 9. sætið.

Fyrri leikur þessara liða endaði með 3-1 sigri Everton og þarf að fara til baka til ársins 2017 til að finna sigur Chelsea. Sá kom á heimavelli í október, 2-1 voru lokatölur.

Carlo Ancelotti hefur náð að breyta gengi Everton eftir að hann tók við sem stjóri. Ancelotti gerir þrjár breytingar frá 1-1 jafnteflinu við Manchester United í síðustu umferð. Luca Digne, Djibril Sidibe og Bernard byrja í stað Theo Walcott, Seamus Coleman og Leighton Baines. Gylfi Þór Sigurðsson er með fyrirliðabandið og er honum stillt upp úti hægra megin.

Frank Lampard er á sínu fyrsta tímabili sem stjóri Chelsea. Frank gerir eina breytingu frá 2-0 sigrinum á Liverpool í enska bikarnum í miðri viku. Mason Mount kemur inn á miðjuna í stað Mateo Kovacic. Billy Gilmour byrjar sinn fyrsta deildarleik á miðjunni í dag.

Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Rudiger, Zouma, Alonso, Mount, Gilmour, Barkley, Willian, Giroud, Pedro.
(Varamenn: Caballero, Christensen, Tomori, James, Broja, Anjorin, Batshuayi.)

Byrjunarlið Everton: Pickford, Sidibe, Holgate, Keane, Digne, Davies, Gomes, Gylfi, Bernard, Calvert-Lewin, Richarlison.
(Varamenn: Stekelenburg, Baines, Mina, Iwobi, Walcott, Kean, Gordon.)


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner