Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. mars 2020 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjórði 2001 leikmaðurinn sem byrjar á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Billy Gilmour er í byrjunarliði Chelsea þegar liðið fær Everton í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni, leikurinn hefst klukkan 14:00.

Squawka tók saman fjóra yngstu leikmenn deildarinnar sem hafa byrjað leik á tímabilinu.

Bukayo Saka er yngsti leikmaður deildarinnar til að byrja leik en hann var 18 ára og 46 daga gamall þegar hann byrjaði sinn fyrsta leik. Mason Greenwood kemur næstur en hann var 18 ára og 64 daga.

Gabriel Martinelli og nú Billy Gilmour eru næstir á listanum en allir fjórir eru þeir á nítjánda aldursári.

Billy Gilmour er fyrsti skoski útspilarinn til að byrja leik með Chelsea frá árinu 1998 en þá byrjaði Steve Clarke hjá Chelsea. Þá var Gilmour augljóslega ekki fæddur.


Athugasemdir
banner
banner
banner