Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 08. mars 2020 13:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Juventus vill spila Meistaradeildarleik á Möltu vegna veirunnar
Þjóðarleikvangur Möltu
Þjóðarleikvangur Möltu
Mynd: Getty Images
Knattspyrnusamband Möltu hefur greint frá því að Juventus hafi haft samband við sambandið.

Juventus spurðist fyrir um hvort möguleiki væri á því að leikur liðsins í Meistaradeildinni geti farið fram á Möltu.

Juventus vill spila við Lyon á þjóðarleikvangi Möltu. Á Möltu eru margir stuðningsmenn Juventus og er hugmyndin að einungis íbúar Möltu mega mæta.

Ef leikurinn fer fram á Ítalíu eru allar líkur á því að hann færi fram fyrir luktum dyrum þar sem reynt er að koma í veg fyrir fjöldasamkomur vegna kórónaveirunnar.
Athugasemdir
banner
banner