Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. mars 2020 08:30
Aksentije Milisic
PSG sagt ætla bjóða 87 milljónir punda í Milinkovic-Savic
Eftirsóttur.
Eftirsóttur.
Mynd: Getty Images
Talið er að PSG sé tilbúið að bjóða 87 milljónir punda í serbneska miðjumanninn Sergej Milinkovic-Savic. Liðið ætlar að reyna kaupa þennan stóra og stæðilega miðjumann næsta sumar.

Sergej hefur spilað mjög vel með Lazio á þessu tímabili en liðið er í bullandi toppbaráttu í Serie A á Ítalíu. Lazio er í efsta sæti deildarinnar í fyrsta skipti í tuttugu ár.

Áhugi PSG á Milinkovic-Savic hófst fyrir tveimur árum en þá sagði Claudio Lotito, forseti Lazio, að hann væri falur fyrir 100 milljónir evra.

Sergej hefur skorað fimm mörk og lagt upp önnur sjö fyrir Lazio á þessu tímabili en hann hefur einnig verið orðaður við Manchester United, Chelsea og Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner