Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 08. mars 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrír ungir leikmenn skrifa undir hjá Selfossi
Leikmennirnir þrír ásamt Dean Martin, þjálfara.
Leikmennirnir þrír ásamt Dean Martin, þjálfara.
Mynd: Selfoss
Þrír ungir leikmenn skrifuðu undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss á föstudag.

Þetta eru þeir Þorsteinn Aron Þorsteinsson, Anton Breki Viktorsson og Sigurður Óli Guðjónsson.

Þeir, ásamt meistaraflokk karla, undirbúa sig þessa dagana á fullu fyrir sumarið.

„Þetta er fagnaðarefni fyrir knattspyrnuna á Selfossi og verður gaman að sjá þá vaxa og dafna í vínrauðu treyjunni," segir í tilkynningu Selfyssinga sem leika áfram í 2. deild karla í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner