Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 08. apríl 2020 08:33
Elvar Geir Magnússon
Sjónvarpsgreiðslum frá KSÍ flýtt
Guðni Bergsson, formaður KSÍ.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjórn KSÍ hefur verið funda um viðbrögð vegna kórónaveirunnar en samþykkt var í síðustu viku að greiða félögum í Pepsi-Max deild karla fyrirfram samningsgreiðslu vegna sjónvarpssamninga.

Samkvæmt samningi er gjalddagi þessarar greiðslu 1. júní en þegar er búið að greiða út.

Frekari aðgerða er að vænta frá KSÍ en hér að neðan má sjá bókun um úrræði sem Alþingi hefur samþykkt.

Úr fundargerð KSÍ:

Formaður KSÍ fór yfir þau úrræði sem Alþingi hefur samþykkt og geta nýst íþróttahreyfingunni. Stjórnin leggur áherslu á eftirfarandi:

Mikilvægt er að úrræði varðandi skert hlutfall starfa nýtist iðkendum og starfsfólki félaga.

Knattspyrnuhreyfingin leggur áherslu á að tillaga skattahóps ríkisins, þar sem fjallað er um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna mannvirkjaframkvæmda og skattafrádrátt stuðningsfólks hreyfingarinnar, verði gerðar að varanlegum úrræðum.

Mikilvægt er að tekið verði fullt tillit til íþróttahreyfingarinnar við úthlutun fjármuna sem ætlað er að mæta þeim áföllum sem dynja nú á hreyfingunni. Hafa verður í huga mikilvægi unglingastarfs félaganna og vinnu þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem leggja hreyfingunni lið. Fjárhagslega sterk íþróttahreyfing er traustur vettvangur til öflugrar viðspyrnu og því er það góð ráðstöfun fjármuna að mæta vanda íþróttafélaganna með öflugu framlagi.

Stjórn KSÍ skorar á sveitarfélögin í landinu að grípa til öflugra aðgerða og undirbúa nú þegar og styðja íþróttafélögin í að koma starfi sínu af stað á ný þegar það verður mögulegt.

Stjórn KSÍ færir stjórnum knattspyrnufélaganna þakkir fyrir snör viðbrögð á erfiðum tímum og hvetur þær áfram til dáða þannig að knattspyrnan á Íslandi komi sterkari en fyrr til leiks þegar óvissutímar eru að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner