Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 08. maí 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Barcelona nálægt því að landa brasilískum táningi
Mynd: Twitter
Diario Sport segir að Barcelona sé nálægt því að tryggja sér hinn nítján ára Gustavo Maia frá Sao Paulo í Brasilíu.

Maia er snöggur sóknarleikmaður sem er sagður góður í að klára færi og með gott auga fyrir sendingum.

Spænskir fjölmiðlar segja að Liverpool og Atletico Madrid hafi einnig sýnt leikmanninum áhuga.

Njósnari frá Barcelona kom auga á þennan efnilega leikmann.

Athygli vekur að Maia hefur ekki leikið fyrir aðallið Sao Paulo en hann hefur þó leikið fyrir unglingalandslið Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner