fös 08. maí 2020 19:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jovic fótbrotinn - Mælirinn fylltur hjá stuðningsmönnum
Mynd: Getty Images
„Seljum þennan mann," er skrifað um Luka Jovic, framherja Real Madrid, í kjölfar frétta dagsins.

Í dag tilkynnti Real Madrid að Luka Jovic væri fótbrotinn. Það er dropinn sem fyllir mælinn hjá einhvejrum stuðningsmönnum Real því Serbinn hefur ekki verið í fréttum fyrir góðar frammistöður í vetur.

Síðasta sumar var Jovic keyptur frá Eintracht Frankfurt og hefur hann alls ekki blómstrað í framlínu Real. Á sama tíma hefur hann verið í fjölmiðlum vegna brota á útgöngubanni í heimsfaraldrinum og eru stuðningsmenn búnir að fá nóg.

„Seljum þennan mann og fáum Aubameyang," skrifar stuðningsmaður Real Madrid við færslu félagsins á Twitter.

„Hvað í andskotanum er þessi maður að gera í einangruninni? - Guð einn veit. Félagið kastaði út líflínu en hann gerði eitthvað heimskulegt aftur. Hann fékk tækifæri en hann klúðraði því."

Fleiri áhugaverð svör má sjá við færslu Real Madrid.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner