Real Madrid er hætt við að reyna að kaupa Paul Pogba í sumar. Þetta fullyrðir spænska blaðið Marca.
Franski miðjumaðurinn hefur lengi verið orðaður við Real Madrid en framtíð hans hjá Manchester United er stöðugt í umræðunni.
Franski miðjumaðurinn hefur lengi verið orðaður við Real Madrid en framtíð hans hjá Manchester United er stöðugt í umræðunni.
Pogba er með samning við Manchester United sem rennur út í júní 2021 en enska félagið getur virkjað ákvæði um eins árs framlengingu.
Pogba mætti aftur á Ols Trafford frá Juventus sumarið 2016 en hefur ekki náð þeim hæðum sem vonast var eftir.
Athugasemdir