Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 08. júní 2021 10:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea tilbúið að hlusta á tilboð í Ziyech - Þrír frá þeim til Milan?
Ziyech einn þriggja Chelsea manna sem AC Milan er að skoða
Ziyech einn þriggja Chelsea manna sem AC Milan er að skoða
Mynd: Getty Images
AC Milan er sagt hafa áhuga á Hakim Ziyech, vængmanni Chelsea, og sé tilbúið að hefja viðræður við kappann um ða ganga í raðir félagsins.

Sky Sport Italia og Gazzetta dello Sport fjalla um það í dag að Stefano Pioli, stjóri Milan, sé mikill aðdáandi Ziyech.

Samkvæmt umfjöllun ítölsku miðlanna er Chelea tilbúið að hlusta á tilboð í vængmanninn.

Milan er þegar í viðræðum við Chelsea um Olivier Giroud og Fikayo Tomori.

Ziyech er 28 ára gamall og kostaði hann um 40 milljónir evra þegar Chelsea keypti hann frá Ajax á síðasta ári. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú í 23 leikjum í úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner