Donny van de Beek, miðjumaður Manchester United, verður ekki með Hollandi á EM alls staðar.
Van de Beek er að glíma við meiðsli og verður ekki klár í tæka tíð samkvæmt yfirlýsingu frá hollenska hópnum.
Van de Beek er að glíma við meiðsli og verður ekki klár í tæka tíð samkvæmt yfirlýsingu frá hollenska hópnum.
Það vakti athygli fjölmiðlamanna í gær að Van de Beek og Matthijs de Ligt æfðu ekki með öðrum í hópnum.
Van de Beek er að koma úr erfiðu tímabili með United þar sem hann spilaði alls ekki eins stórt hlutverk og hann hafði vonast. Hann lék aðeins 511 mínútur í ensku úrvalsdeildinni.
Holland er í C-riðli á EM ásamt Úkraínu, Austurríki og Norður-Makedóníu,
Athugasemdir