Raphael Varane, miðvörður Real Madrid og franska landsliðsins, hefur mikið verið orðaður við Manchester United að undanförnu.
Varane hefur ekki framlengt samning sinn við Real og er það samkvæmt spænskum heimildum vegna þess að hann er með tilboð frá Man Utd á borðinu, tilboð sem sé talsvert hærra en hann hefur fengið frá Real.

Real er sagt tilbúið að hækka laun Varane úr 4,3 milljónum punda á ári í 7,7 milljónir punda. Varane vill meira og horfir í þann launapakka sem David Alaba fékk þegar hann kom frá Bayern. Alaba fær 10,7 milljónir punda í árslaun.
Manchester United er sagt tilbúið að bjóða Varane árslaun upp á 10,3 milljónir punda.
Real er sagt vilja fá 60 milljónir punda fyrir Varane sem hefur verið hjá félaginu síðan 2011. Varane varð 28 ára í apríl og rennur samningur hans út næsta sumar.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, er sagður í leit að miðverði sem getur spilað við hlið Harry Maguire í hjarta United varnarinnar.
Athugasemdir