Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 08. júní 2021 14:28
Elvar Geir Magnússon
Smit í herbúðum Svía fyrir EM
Dejan Kulusevski.
Dejan Kulusevski.
Mynd: Getty Images
Dejan Kulusevski, leikmaður Juventus, hefur greinst með Covid-19 en hann er í sænska landsliðshópnum sem býr sig undir EM alls staðar.

Þessi fjölhæfi sóknarmiðjumaður tilkynnti læknateymi Svía í morgun að hann væri með flensueinkenni. Hann var umsvifalaust settur í skimun og reyndist með veiruna.

Kulesevski hefur verið einangraður frá sænska hópnum.

Svíþjóð á fyrsta leik á EM gegn Spánverjum á mánudag og ljóst er að Kulusevski verður ekki með í þeim leik. Vonast er til þess að hann geti þó verið með í hinum leikjum riðlakeppninnar, gegn Póllandi og Slóvakíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner