Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. júní 2022 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu ótrúlegt klúður Hazard gegn Póllandi
Hazard hefur skorað 33 mörk í 117 landsleikjum.
Hazard hefur skorað 33 mörk í 117 landsleikjum.
Mynd: EPA

Eden Hazard spilaði fyrstu 66 mínúturnar í stórsigri Belgíu gegn Póllandi í Þjóðadeildinni fyrr í kvöld.


Hazard átti fínan leik og lagði upp annað mark Belgíu skömmu áður en honum var skipt útaf fyrir Leandro Trossard í stöðunni 2-1.

Hazard hefði þó getað skorað áður en honum var skipt útaf en hann klúðraði algjöru dauðafæri þegar hann fylgdi stangarskoti Michy Batshuayi eftir. Hazard var með hálfopið mark fyrir framan sig en setti boltann framhjá.

Trossard átti eftir að breyta leiknum því hann skoraði tvennu eftir innkomuna og breytti stöðunni í 4-1. Lokatölur urðu svo 6-1 í sannkölluðum stórsigri.

Hazard ætlar að leggja mikið kapp á að vera í sem besta mögulega ástandi líkamlega þegar næsta tímabil gengur í garð. Hann ætlar loksins að sanna sig með Real Madrid eftir þrjú léleg ár.


Athugasemdir
banner
banner