Southampton er að ganga frá kaupum á Gavin Bazunu, tvítugum markverði Manchester City sem er aðalmarkvörður írska landsliðsins.
Bazunu hefur verið hjá Man City í þrjú ár en varði síðustu leiktíðum úti á láni hjá Rochdale og Portsmouth. Hann varði mark Portsmouth á síðustu leiktíð er liðið endaði í tíunda sæti C-deildarinnar.
Bazunu er mikils metinn innan herbúða City en það er ekkert pláss fyrir hann í aðalliðinu. Hjá Southampton eru tveir markverðir fyrir, þeir Alex McCarthy og Willy Caballero, en þeir eru báðir að renna út á samningi í sumar. Ólíklegt er að Southampton semji aftur við hinn fertuga Caballero.
Southampton borgar 11 milljónir punda fyrir Bazunu með 4 milljónir punda í árangurstengdar aukagreiðslur og getur heildarverðið því numið 15 milljónum punda.
Bazunu tekur sæti Fraser Forster í leikmannahópnum eftir að Forster gekk til liðs við Tottenham Hotspur í dag.