Inter Milan nálgast óðfluga samkomulag við stjörnuframherja sinn, Mauro Icardi um framlengingu á samningi hans.
Icardi mun hitta forráðamenn félagsins á mánudaginn og ganga frá smáatriðum í nýjum samningi.
Icardi var í þrusuformi á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 29 mörk fyrir Inter. Það vakti athygli annarra liða en hann hefur meðal annars verið orðaður við Chelsea.
Inter vill ganga frá samningum sem fyrst eftir að það kom opinberlega í ljós að leikmaðurinn hefði 80 milljón punda klásúlu í samningi sínum. Icardi var ekki í landsliðshópi Argentínu á HM og ætti því að mæta ferskur inn í nýtt tímabil.
Athugasemdir