Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. júlí 2018 23:30
Gunnar Logi Gylfason
Lið í Championship-deildinni hafa áhuga á Woodburn
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur fengið tilboð frá Sheffield United og Norwich um að fá Walesverjann unga Ben Woodburn að láni fyrir komandi tímabil.

Liverpool er þó að bíða með að gefa svar þar sem félagið ætlar að bíða og sjá hvort eitthvað betra býðst.

Woodburn, sem er aðeins 18 ára gamall, hefur leikið 7 landsleiki fyrir Wales þrátt fyrir ungan aldur.

Auk þess hefur Walesverjinn leikið 6 leiki fyrir Liverpool, sá fyrsti kom árið 2016 en hann gekk til liðs við félagið árið 2007.
Athugasemdir
banner
banner
banner