Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 08. júlí 2018 17:26
Gunnar Logi Gylfason
Svíþjóð: Guðmundur, Jón Guðni og Arnór byrjuðu í jafntefli
Jón Guðni Fjóluson
Jón Guðni Fjóluson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson, Jón Guðni Fjóluson og Arnór Sigurðsson byrjuðu allir inn á í liði Norrköping þegar liðið gerði jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Norrköping lenti undir eftir um stundarfjórðung gegn Djurgården og var undir í hálfleik.

Arnór var tekinn af velli á 64. mínútu og þremur mínútum síðar jafnaði Simon Skrabb metin fyrir Norrköping.

Guðmundur og Jón Guðni spiluðu allan leikinn.

Um var að ræða toppbaráttuslag þar sem Norrköping er í 3.sæti og Djurgården einu sæti neðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner