Brasilíska félagið Corinthians hefur gefið það út að félagið hafi samþykkt að selja varnarmanninn Fabian Balbuena til West Ham.
Corinthians sendu frá sér tilkynningu á laugardaginn sem sagði West Ham hafa mætt kröfum um þennan 23. ára gamla landsliðsmann Paragvæ. Leikmaðurinn mun nú ferðast til Lundúna þar sem hann undirgengst læknisskoðun.
Balbuena hefur spilað 136 leiki fyrir Corinthians og skorað 11 mörk á þremur árum hjá félaginu. Hann hjálpaði félaginu meðal annars að sigra brasilísku deildina árið 2017.
Athugasemdir