sun 08. júlí 2018 15:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vida sleppur með viðvörun - Með gegn Englandi
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Domagoj Vida sleppur við leikbann og má spila með Króatíu gegn Englandi í undanúrslitunum á HM.

Þetta staðfesti með yfirlýsingu fyrir stuttu.

Vida lenti í klandri þegar myndband af honum var birt eftir sigur Króatíu gegn Rússlandi í vítaspuyrnukeppni í 8-liða úrslitum HM í gær. Í myndbandinu sést Vida segja „lifi Úkraína!"

Vida er fyrrum leikmaður Dynamo Kiev en hann leikur í dag með Besiktas í Tyrklandi.

Stirrt er á milli Rússlands og Úkraínu eftir innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014.

Pólitísk skilaboð eru með öllu móti bönnuð á HM en Vida sleppur með viðvörun í þetta sinn.

England og Króatía eigast við í undanúrslitum HM næstkomandi miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner