Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 08. júlí 2018 18:00
Gunnar Logi Gylfason
Yarmolenko og Wilshere nálgast West Ham
Yarmolenko
Yarmolenko
Mynd: Getty Images
Wilshere
Wilshere
Mynd: Getty Images
Andriy Yarmolenko og Jack Wilshere gætu gengið til liðs við Hamranna á komandi dögum.

West Ham og Borussia Dortmund hafa komist að samkomulagi um kaupverð upp á 17.5 milljónir punda fyrir Úkraínumanninn Yarmolenko.

Búist er við því að þessi 28 ára kantmaður gangist undir læknisskoðun í æfingabúðum enska félagsins í Sviss, þar sem liðið dvelur í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil.

Yarmolenko hefur aðeins verið eitt tímabil hjá Dortmund en hann skoraði sex mörk í 26 leikjum.

Heimildir Sky herma einnig að búist sé við að Wilshere ætti að komast að samkomulagi við Hamrana um skipti á næstu dögum.

Þessi 26 ára enski miðjumaðurinn, sem hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli, fer frítt til liðsins þar sem samningur hans við Arsenal rann út á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner