Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. júlí 2018 20:00
Gunnar Logi Gylfason
Zaha neitar að skrifa undir risasamning við Crystal Palace
Er Zaha á förum frá Crystal Palace?
Er Zaha á förum frá Crystal Palace?
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur lengi reynt að fá Wilfried Zaha, besta leikmann Crystal Palace.

Lundúnafélagið hefur nú fengið góðar fréttir en Zaha neitar að skrifa undir samning við Crystal Palace upp á 125 þúsund pund í vikulaun.

Palace mun líklegast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja það að leikmaðurinn haldi áfram að spila fyrir uppeldisfélagið.

Zaha er uppalinn hjá Palace og spilaði 110 leiki fyrir Crystal Palace áður en hann gekk til liðs við Manchester United árið 2013. Á meðan hann var samningsbundinn Manchester United fór hann tvisvar sinnum á lán til Palace áður en fór svo endanlega aftur til uppeldisfélagsins árið 2015.

Zaha á tvo vináttulandsleiki að baki fyrir England en valdi svo að spila fyrir landslið Fílabeinsstrandarinnar, þar á hann átta landsleiki að baki og tvö mörk.
Athugasemdir
banner
banner