Gonzalo Higuain, framherji Juventus á Ítalíu, neitar að fara frá félaginu og telur sér trú um það að hann geti sannfært Maurizio Sarri.
Higuain hefur ekki gert neinar rósir frá því hann fór á láni frá Juventus til AC Milan fyrir síðasta tímabil. Hann gerði 8 mörk í 22 leikjum fyrir Milan áður en hann tók síðari hluta tímabilsins með Chelsea.
Maurizio Sarri, nýráðinn þjálfari Juventus, fékk Higuain til Chelsea á láni en vill ekkert með hann hafa á Ítalíu.
Roma hefur mikinn áhuga á að fá hann en Higuain vill ekki fara og mun hann neita öllum tilboðum á Ítalíu.
Higuain vill spila fyrir Juventus og ætlar hann sér að sannfæra Sarri á undirbúningstímabilinu. Hann er búinn að ráða einkaþjálfara sem er að koma honum í betra form.
Þetta pirrar Juventus þar sem félagið reynir að fá Mauro Icardi frá Inter og eina leiðin til þess er að selja Higuain.
Athugasemdir