mán 08. júlí 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
Juve vill Pogba - Gerrard næsti stjóri Newcastle?
Powerade
Framtíð Paul Pogba er í óvissu.
Framtíð Paul Pogba er í óvissu.
Mynd: Getty Images
Tekur Gerrard við Newcastle?
Tekur Gerrard við Newcastle?
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin eru mætt með slúðurskammt dagsins!



Mike Ashley, eigandi Newcastle, hefur rætt við Steven Gerrard, stjóra Rangers, um að taka við stjórastöðunni á St'James Park. (Mirror)

Juventus er að undirbúa 120 milljóna punda tilboð í Paul Pogba (26) miðjumann Manchester United. (Times)

David De Gea (28) er að fara að gera nýjan samning við Manchester United en sá samningur mun gefa honum 350 þúsund pund í vikulaun. (Mirror)

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill taka við þýska landsliðinu einn daginn en þetta segir umboðsmaður hans. (Welt)

Barcelona náði að hafa betur gegn PSG í baráttunni um Louie Barry (16) framherja WBA en hann varð samningslaus á dögunum. (Sun)

Tottenham er í viðræðum um nýjan samning við vinstri bakvörðinn Ben Davies (26). (Telegraph)

Neal Maupay (22), framherji Brentford, gæti orðið dýrasti leikmaðurinn í sögu Sheffield United en nýliðarnir vilja kaupa hann á 22 milljónir punda. (Sun)

Kieran Tierney, vinstri bakvörður Celtic, er á óskalista Arsenal og Napoli. (Telegraph)

Burnley er að fá vinstri bakvörðinn Erik Pieters (30) frá Stoke. (Mail)

Crystal Palace vill fá Reece James (19) varnarmann Chelsea til að fylla skarð Aaron Wan-Bissaka sem var seldur til Manchester United á dögunum. (Sun)

Wayne Rooney segir að Jordan Sancho (19) eigi að hafna Manchester United og vera áfram hjá Borussia Dortmund. (Bild)

Nottingham Forest er að fá markvörðinn Aro Muric (20) frá Manchester City. (Telgraph)

Dean Henderson (22), markvörður Manchester United, er á leið til Sheffield United á láni. (Sun)

West Ham gæti keypt Ander Silva (23) framherja Sevilla, Sebastien Haller (25) framherja Frankfurt eða Jean Philippe-Mateta (22) framherja Mainz ef félagið nær ekki að krækja í Maxi Gomez (22) frá Celta Vigo. (Football.London)
Athugasemdir
banner
banner
banner