Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. júlí 2019 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Þórsarar sigla stuðningsmönnum til Grenivíkur
Þórsarar mæta Magna á fimmtudag
Þórsarar mæta Magna á fimmtudag
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni og Þór mætast í Inkasso-deild karla á fimmtudag en Þórsarar hafa ákveðið að sigla stuðningsmönnum til Grenivíkur til að skapa stemningu.

Þór er í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig á meðan Magni er í botnsætinu með aðeins 6 stig.

Gestirnir ætla að búa til öfluga stemningu í kringum leiknum og hefur knattspyrnudeildin því ákveðið að ferja stuðningsmennina til Grenivíkur.

Það er að fyllast í bátinn sem fer frá Hauganesi til Grenivíkur. Stefnt er að því að sigla klukkan 18:15 en leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:15.

Þórsarar eru að gera atlögu að því að komast aftur upp í deild þeirra bestu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner