Íslenska landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir hefur framlengt samning sinn við sænska félagið Rosengard til ársins 2022.
„Auðvitað er ég mjög ánægð með að Glódís hafi ákveðið að framlengja hjá okkur. Að mínu mati er hún einn af bestu miðvörðum Evrópu," sagði Therese Sjögran, þjálfari Rosengard.
Hin 25 ára gamla Glódís hefur leikið með Rosengard síðan árið 2017.
„Ég er mjög ánægð með að hafa skrifað undir nýjan samning og hlakka til að halda áfram að bæta mig í þessu frábæra umhverfi," sagði Glódís eftir undirskrift.
„Þetta verður spennandi í ár í sænsku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni og ég hlakka til að takast á við þessar áskoranir með liðinu."
Athugasemdir