Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. júlí 2021 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Konate kominn með treyjunúmer hjá Liverpool
Ibrahima Konate.
Ibrahima Konate.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Ibrahima Konate er búinn að fá treyjunúmer hjá Liverpool.

Hann mun klæðast treyjunúmerinu sem Georgino Wijnaldum skilur eftir sig; treyju númer 5.

Wijnaldum hefur verið með þetta númer á bakinu undanfarin ár en hann er núna farinn til Paris Saint-Germain.

Konate var keyptur til Liverpool frá RB Leipzig í síðasta mánuði. Konate lék 21 leik fyrir RB Leipzig á síðasta tímabili en liðið endaði í öðru sæti í þýsku Bundesligunni. Varnarleikurinn var höfuðverkur hjá Liverpool á liðnu tímabili vegna langtímameiðsla Virgil van Dijk, Joe Gomez og Joel Matip.

Meðal annarra leikmanna sem hafa verið með 5 á bakinu hjá Liverpool eru Daniel Agger og Milan Baros.
Athugasemdir
banner
banner
banner