Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. júlí 2021 11:00
Elvar Geir Magnússon
Miðapar á úrslitaleikinn til sölu á 8,5 milljónir
Fagnað í London í gærkvöldi.
Fagnað í London í gærkvöldi.
Mynd: Getty Images
Það var fagnað fram á rauða nótt á Englandi eftir að landslið þjóðarinnar tryggði sér sæti í úrslitaleik EM alls staðar.

England vann Danmörku á umdeildri vítaspyrnu í framlengingu þegar liðin áttust við í undanúrslitum EM. England mun leika gegn Ítalíu í úrslitaleik á sunnudag.

Þegar er uppselt á leikinn, sem fram fer á Wembley, en einhverjir sem eru með miða hyggjast græða vel og hafa sett miðana á sölu á svörtum markaði.

Mirror kannaði verðið á miðunum og fann meðal annars miðapar sem er til sölu á 50 þúsund pund eða um 8,5 milljónir íslenskra króna.
Athugasemdir
banner
banner