Stjarnan 1 - 1 Bohemian
1-0 Emil Atlason ('25)
1-1 Tyreke Wilson ('63)
1-0 Emil Atlason ('25)
1-1 Tyreke Wilson ('63)
Íslensku liðin fara þokkalega vel af stað í Sambandsdeildinni og er Stjarnan eina liðið sem mistókst að sigra í leikjum kvöldsins.
Stjarnan tók á móti írska félaginu Bohemian og komst yfir í fyrri hálfleik þegar Emil Atlason skallaði góða fyrirgjöf frá Elís Rafni Björnssyni í netið.
Gestirnir voru meira með boltann en áttu í miklum erfiðleikum með að skapa sér færi á meðan Garðbæingar voru hættulegir í sínum skyndisóknum en þó ekki nógu.
Það var á 66. mínútu sem gestirnir jöfnuðu. Það var Tyreke Wilson sem kom knettinum í netið en skot hans hafði viðkomu í Brynjari Gauta Guðjónssyni og fór þaðan í netið.
Gestirnir voru betri á lokakaflanum en skoruðu ekki og fara liðin inn í seinni leikinn á Írlandi á byrjunarreit.
Athugasemdir