Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 08. ágúst 2018 14:35
Elvar Geir Magnússon
Freysi: Viss um að þetta sé rétti maðurinn
Icelandair
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hefði ekki tekið þennan slag nema ég væri viss um að þetta væri rétti maðurinn," segir Freyr Alexandersson sem verður aðstoðarmaður Erik Hamren með íslenska landsliðið.

„Áður en ég fór í einhverjar samningaviðræður þá setti ég kröfur um að ég myndi fá að hitta manneskjuna og ræða við hana um fótbolta. Eftir að við hittumst og áttum sex tíma fund þá var ég viss um að þetta væri maður sem væri góður fyrir Ísland. Ég sá að ég gæti fengið helling frá honum og að ég hefði hæfileika til að hjálpa honum að sýna sínar bestu hliðar."

„Þetta er viðkunnalegur maður og klár. Hann er með þvílíka reynslu og þú hlýtur að vera góður leiðtogi ef þú vinnur alla þessa titla í mismunandi löndum. Hann er með klára hugmyndafræði og veit nákvæmlega hvað hann vill."

Freyr segir að hann og Hamren séu búnir að setja saman lista yfir leikmenn sem þeir vilja fylgjast grannt með áður en fyrsti landsliðshópurinn þeirra verður kynntur.

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Freyr meðal annars um kvennalandsliðið en hann verður áfram þjálfari þess út undankeppni HM.
Athugasemdir
banner
banner