Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. ágúst 2022 20:01
Brynjar Ingi Erluson
Arnautovic er ekki til sölu - „Stoltir af áhuganum en hann er ekki einu sinni með verðmiða"
Marko Arnautovic
Marko Arnautovic
Mynd: EPA
Marco di Vaio, yfirmaður íþróttamála hjá Bologna á Ítalíu, segir að Marko Arnautovic sé ekki til sölu.

Manchester United lagði fram óvænt 7,6 milljón punda tilboð í austurríska framherjann í gær en því tilboði var hafnað af Bologna.

Arnautovic er 33 ára gamall og skoraði 14 mörk fyrir liðið í Seríu A á síðustu leiktíð.

United er að undirbúa nýtt tilboð í kappann en Di Vaio segir það ekki í plönum Bologna að selja hann. Arnautovic er í byrjunarliði Bologna í ítalska bikarnum sem er að spila við Cosenza.

„Við erum stoltir af áhuga Manchester United á Marko en við erum ekki að plana það að selja hann. Við viljum halda honum hjá Bologna og eins og forsetinn sagði þá er hann lykilmaður í verkefninu sem við erum með í gangi. Hann er ekki einu sinni með verðmiða," sagði Di Vaio.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner