Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. september 2019 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Synir Matic fengu mynd með Ronaldo eftir leikinn
Nemanja Matic og Cristiano Ronaldo í leiknum í gær
Nemanja Matic og Cristiano Ronaldo í leiknum í gær
Mynd: EPA
Nemanja Matic, leikmaður Manchester United og serbneska landsliðsins, beið eftir Cristiano Ronaldo eftir 4-2 tapið gegn Portúgal í gær.

Það var hart barist í undankeppni EM í gær en Portúgal hafði góðan sigur í Serbíu, 4-2. Cristiano Ronaldo skoraði eitt af mörkum portúgalska liðsins.

Matic og Ronaldo hittust eftir leik en serbneski miðjumaðurinn bað Ronaldo um að kíkja í stutta myndatöku. Synir Matic eru miklir aðdáendur Ronaldo og fannst portúgölsku stjörnunni sjálfsagt að sitja fyrir.

Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan en Matic var auðvitað á myndavélinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner