Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 08. september 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Thiago Silva ánægður með að halda Neymar
Neymar verður áfram hjá PSG
Neymar verður áfram hjá PSG
Mynd: Getty Images
Thiago Silva, fyrirliði Paris Saint-Germain í Frakklandi, var himinlifandi með þær fréttir að Neymar yrði áfram liðsfélagi hans.

Það var lítið annað í umræðunni í sumar en möguleg félagaskipti Neymar til Barcelona en hann vildi komast frá PSG og aftur til Barcelona.

Viðræður milli Barcelona og PSG gengu illa en Juventus og Real Madrid höfðu einnig áhuga. EKkert varð þó úr skiptunum og ljóst að hann verður áfram í herbúðum PSG í eitt ár til viðbótar.

Hann skoraði og lagði upp í 2-2 jafntefli Brasilíu gegn Kólumbíu í gær og er Thiago Silva ánægður með að halda honum.

„Ég þakka Guð fyrir að hann verður áfram. Við erum allir ánægðir með það því markmiðin okkar eru stór og það vita það allir. Við viljum vinna Meistaradeildina og við getum það ekki nema við séum með frábæra leikmenn. Ef Neymar hefði farið þá hefði það verið mikil blóðtaka fyrir okkur," sagði Silva.
Athugasemdir
banner
banner