Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. september 2021 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hræðilegt landsleikjahlé - Gætu verið án 7 leikmanna
Mynd: Getty Images
Þetta landsleikjahlé hefur verið mjög slæmt fyrir Tottenham. Þeir gætu verið án sjö leikmanna gegn Crystal Palace á laugardaginn.

Fjórir leikmenn hafa orðið fyrir meiðslum og þrír leikmenn fóru til Suður Ameríku án leyfis og gætu þurft að vera í sóttkví.

Heung-Min Son meiddist á æfingu suður-kóreska landsliðsins á mánudaginn. Þá bættust mögulega þrír við meiðslalistann í gær.

Ryan Sessegnon og Oliver Skipp voru með u21 landsliði Englands en Sessegnon meiddist á æfingu og Skipp meiddist í sigri liðsins á Kósóvó í gær.

Þá haltraði Steven Bergwijn af velli í sigri Hollands gegn Tyrklandi í gær. Hann settist á bekkinn og kældi ökklann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner