Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 08. september 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rafinha ekki valinn í Meistaradeildarhóp PSG
Rafinha í leik með Barcelona
Rafinha í leik með Barcelona
Mynd: Getty Images
Rafinha Alcantara er ekki í Meistaradeildarhópi PSG í vetur. Þessi fyrrum leikmaður Barcelona hefur ekki verið inn í myndinni hjá Pochettino en hann hefur aðeins komið við sögu í tvær mínútur á þessari leiktíð.

Rafinha er yngri bróðir Thiago Alcantara leikmanns Liverpool en hann lék með Barcelona á árunum 2011-2020 áður en hann hélt til PSG.

Það vekur athygli að hann skuli ekki vera í myndinni hjá PSG í ljósi þess að Sky Sports greinir frá því að honum hafi ekki verið hleypt til Aston Villa í sumar.

PSG er með Man City, Leipzig og Club Brugge í riðli í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner