Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 08. september 2021 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
U21: Brewster skoraði í sigri Englands
Mynd: Getty Images
Enska u21 árs landsliðið vann Kósóvó með tveimur mörkum gegn engu í undankeppni EM í gær.

Rhian Brewster framherji Sheffield United kom Englandi yfir með marki úr vítaspyrnu og Cole Palmer miðjumaður Man City skoraði seinna markið.

Brewster skoraði sitt fyrsta mark fyrir u21 liðið í sínum þrettánda leik. Þetta var fyrsti leikur Palmer.

Brewster er alinn upp hjá Liverpool og bundu þeir miklar vonir við hann á sínum tíma. Hann var síðan seldur til Sheffield síðasta sumar fyrir rúmlega 20 milljónir punda.

Honum hefur ekki enn tekist að skora deildarmark fyrir Sheffield. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Sheffield þann 10 ágúst síðastliðinn er hann skoraði eina mark leiksins í sigri á Carlisle í enska deildarbikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner