Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. september 2021 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Undankeppni HM í dag - Þjóðverjar heimsækja Laugardalsvöll
Úr fyrri leik Þýskalands og Íslands.
Úr fyrri leik Þýskalands og Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Evrópumeistararnir mæta Litháen
Evrópumeistararnir mæta Litháen
Mynd: EPA
Lewandowski og félagar mæta Englandi.
Lewandowski og félagar mæta Englandi.
Mynd: EPA
Það eru 12 leikir í undankeppni HM í dag. Það er leikið í B, C,E,I og J riðli sem Ísland er í.

Risa knattspyrnuþjóðin, Þýskaland, mætir á Laugardalsvöll í kvöld en leikurinn hefst kl 18:45. Það er einn leikur kl 16 í dag en það er leikur Armeníu og Liechtenstein í okkar riðli. Norður Makedonía fær Rúmeníu í heimsókn kl 18:45.

Grikkland fær Svíþjóð í heimsókn í B-riðli. Kósóvó fær erfitt verkefni þar sem spánverjar koma í heimsókn. Spánn er á toppi riðilsins með 10 stig, stigi á undan Svíþjóð. Kósóvó er í þriðja með 4 stig en Grikkir eru í fjórða með þrjú stig. Georgía rekur lestina.

í C-riðli mætast Ítalía og Litháen. Ítalir á toppnum með 11 stig en Litháen án stiga. Norður-Írland fær Sviss í heimsókn. Sviss fjórum stigum á eftir Ítölum en Norður-Írar í 4. sæti með fjögur stig.

Í E-riðli fer Belgía til Hvíta-Rússlands. Belgía er á toppi riðilsins með 13 stig, 10 stigum á undan Hvít-Rússum sem eru í 4. sæti. Wales og Eistland mætast. Wales með 6 stig en Eistland án stiga.

Englendingar eru með fullt hús stiga í I-riðli en liðið mætir Póllandi sem er í öðru sæti 5 stigum á eftir í kvöld. Albanía í 3. sæti með 9 stig mætir San Marínó sem er án stiga og Ungverjaland og Andorra mætast.

Allir leikirnir nema einn hefjast kl 18:45.

WORLD CUP: Europe, Qualification, Group B
18:45 Grikkland - Svíþjóð
18:45 Kósóvó - Spánn

WORLD CUP: Europe, Qualification, Group C
18:45 Ítalía - Litháen
18:45 Norður Írland - Sviss

WORLD CUP: Europe, Qualification, Group E
18:45 Hvíta Rússland - Belgía
18:45 Wales - Eistland

WORLD CUP: Europe, Qualification, Group I
18:45 Albanía - San Marino
18:45 Ungverjaland - Andorra
18:45 Pólland - England

WORLD CUP: Europe, Qualification: Group J
16:00 Armenia - Liechtenstein
18:45 Ísland - Þýskaland
18:45 Norður Makedónía - Rúmenía
Athugasemdir
banner
banner
banner