Staðan 2-0 fyrir Íslandi
Gylfi Þór Sigurðsson er að sýna hvers megnugur hann er í leiknum mikilvæga gegn Rúmeníu sem nú stendur yfir.
Gylfi var að skora annað mark Íslendinga og er staðan er orðin 2-0. Bæði mörkin hefur Gylfi skorað með vinstri fæti.
„Alfreð lyftir boltanum inn á teiginn og finnur Gylfa sem tekur við boltanum og skýtur með vinstri fæti í fjærhornið - óverjandi! Svo svo svo fallegt mark! Einnar snertingar fótbolti í aðdragandanum," skrifaði Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke í beinni textalýsingu.
Textalýsingu má nálgast hérna.
Annað mark Gylfa má sjá hér að neðan. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Sigurliðið í þessum leik mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi í úrslitum umspilsins um sæti á EM.
Skomina er búinn að flauta til hálfleiks. Hér er Gylfi Þór að koma Íslandi í 2-0! 🇮🇸⚽️ pic.twitter.com/ym8rUDAAiU
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) October 8, 2020
Athugasemdir