Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. október 2020 15:35
Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaður Rúmena skipti um lið á leikdegi
Mynd: Getty Images
Sóknarleikmaðurinn Alexandru Mitrita hefur gengið í raðir Al-Ahli í Sádi Arabíu á lánssamningi frá New York City en samningurinn er til 31. janúar 2022.

Mitrita er 25 ára og er lykilmaður í rúmenska landsliðinu sem er að fara að spila gegn Íslandi í kvöld og hefur því væntanlega gengið frá skiptunum frá Grand hóteli í Reykjavík þar sem liðið dvelur.

Í tilkynningu frá New York City segir félagið að skipti Mitrita séu aðallega af persónulegum ástæðum, svo hann geti verið nær fjölskyldu sinni á þessum furðulegu tímum.

Mitrita hefur skorað tvö mörk í ellefu landsleikjum fyrir Rúmeníu.


Athugasemdir
banner
banner