Það er auðveldara að verjast Lionel Messi í dag en fyrir nokkrum árum að sögn varnarmannsins Adil Rami sem spilar með Troyes í Frakklandi.
Rami er fyrrum leikmaður Sevilla og þekkir það vel að mæta Messi sem lék í mörg ár með Barcelona en hélt til Paris Saint-Germain í sumar.
Rami segir að Messi sé meira í því að gefa boltann á samherja í dag frekar en að taka á rás gegn varnarmönnum.
„Það er rétt, ég vann aldrei gegn honum en það komu einhver jafntefli. Ég fékk fjórar eða fimm treyjur frá honum,“ sagði Rami.
„Hann var of sterkur á þessum tíma og komst alltaf inn fyrir mig. Hann var rangstæður og færði sig svo að miðlínunni og fór svo af stað.“
„Nú er hann meira í því að gefa boltann svo það er auðveldara fyrir varnarmenn, við getum beðið.“
Athugasemdir