Steve Bruce, stjóri Newcastle, viðurkennir að hann óttist um eigið starf eftir eigandaskipti hjá félaginu.
Mike Ashley náði í gær loksins að selja enska félagið og er afar líklegt að nýir eigendur frá Sádí-Arabíu vilji breyta til.
Bruce er nú þegar ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum Newcastle sem vilja sjá breytingar og það sem fyrst.
„Ég vil halda áfram, ég vil ná að sýna nýju eigendunum hvað ég get gert,“ sagði Bruce í samtali við Telegraph.
„Maður þarf samt að vera raunsær og það er líklegt að þeir muni vilja nýjan stjóra til þess að taka liðið áfram.“
Athugasemdir