Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 08. október 2021 21:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elías Rafn: Maður er búinn að bíða eftir þessu lengi
Icelandair
Elías Rafn Ólafsson.
Elías Rafn Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson lék sinn fyrsta A-landsleik í kvöld þegar Ísland gerði 1-1 jafntefli við Armeníu á heimavelli. Elías átti flottan leik.

„Þetta gerist ekki betra. Maður er mjög ánægður að spila sinn fyrsta A-landsleik. Það er geggjað að koma inn í þennan hóp," sagði Elías við RÚV eftir leikinn.

„Ég bjóst ekki við neinu. Ég var klár ef ég ætti að byrja og ég var það í dag. Svo er þetta val þjálfarans og hann treysti mér í dag. Það er gaman að því."

Hvernig var tilfinning að ganga inn á Laugardalsvöll. „Maður er búinn að bíða eftir þessi lengi - frá því maður var lítill. Þetta var geggjað."

Elías, sem hefur verið að spila frábærlega með Midtjylland í Danmörku, segist vilja eigna sér markvarðarstöðuna en hann segir það auðvitað val þjálfarana. Hann var nokkuð sáttur með frammistöðu sína í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner